Tuesday, July 04, 2006

achtung....

Jæja þá eru eingöngu 4 dagar í að langþráð útilega bionerdics verði að veruleika.
Búið er að gera smá breytingar á plönum þar sem þetta var heldur svona tæpt að fara á fyllerí á laugardegi, mæta í massaerfitt (amk sýndist mér það af á heimasíðu rafting.is) river rafting sem tekur 6-7 tíma, um hádegi og eiga svo eftir að keyra í bæinn um kvöldið.... Heldur stór biti í þetta skiptið þannig að í staðinn er verið að athuga með siglingu út í Drangey á laugardeginum. Það verður líka aðeins ódýrara og býst ég við að flestir séu sáttir með það.

Ég hringdi inn á hóla í gær þar sem Sindri var að veiða einn stóran í beinni þannig að vonandi fáum við ferskan fisk í matinn þegar við komum...

Svo með bíla þá er komið á hreint að Gaui fer með Sæma og Vigdísi og ætla þau að leggja af stað upp úr 4 á föstudaginn...
Kannski ég fari með Eydísi og við getum þá pikkað Lýð upp í Borgarnesi...
Þetta er allt að skýrast.
Ennþá eftir að tékka með Sögu og félaga.

8 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Það þýðir ekki að bjóða syndinni í kaffi!
Það á að segja burt með þig!
Þú ert viiðurstyggð!

Þetta eru skilaboð frá hólum.

04 July, 2006 23:34  
Anonymous Anonymous said...

bwahahahah!

05 July, 2006 08:52  
Anonymous Anonymous said...

:D

En hvernig er það, eruði með grill þarna á Hólum, eða þarf maður að vesenast með einnota grill?

05 July, 2006 19:34  
Blogger marino said...

tjah... Best að hafa varann á og koma með einnota, annað er þá bara plús ;)

07 July, 2006 10:06  
Blogger Halla said...

eruði ekki að grínast með einnota?! og svo er líka brjálæðislega gott veður í Rvk og mar er að fara þaðan og í rigninguna á hólum... spurning um að beila bara.......
Nei glætan!

07 July, 2006 11:47  
Blogger marino said...

Það er svona úti-kolagrill ekki langt frá okkur sem væri hægt að nota. Veit ekki með tjaldsvæðin, má vel vera að eitthvað slíkt sér þar líka :) Hrönn er líka með lítið ferðagasgrill svo þetta á nú að hafast... Best er bara að vera með varann á! og hættu svo að kvarta þaddna Halla!

07 July, 2006 13:08  
Anonymous Anonymous said...

ps. ég átti afmæli í gær... takk fyrir að óska mér til hamingju sekkirnir ykkar :Þ

07 July, 2006 15:37  
Anonymous Anonymous said...

I'm impressed with your site, very nice graphics!
»

20 July, 2006 20:05  

Post a Comment

<< Home