Thursday, April 19, 2007

þeir eru sjaldséðir, hvítu hrafnarnir

Jæja
Kannski komin tími til að setja inn hérna einhver orð... má segja að þessi síða sé í andarslitrunum hérna, en hvað um það.
Ég var að ljúka við 10bls ritgerðina mína í eiturefnavistfræði... aldrei hafa tíu blaðsíður verið jafn lengi í fæðingu og nú... alveg hreint óskiljanlegt hvað þetta gekk illa. Eeen nú er það búið, ég er komin með svo mikið ógeð að ég meika ekki að lesa yfir heldur vil ég bara koma þessu frá mér.
Fyrir vikið er komið að prófalestri... já það eru ekki nema 10 dagar í próf!! Og sem fyrr eru menn að byrja á byrjunarreit nokkrum dögum fyrir próf, já það er gömul saga og ný krakkar mínir.
Annars er það sem ég ætla að gera áður en ég byrja að læra fyrir próf:
  1. Taka til og þrífa heima, ekki séns að einbeita sér í prófum með drasl upp á hné..
  2. Fara í vax og litun og plokkun og kannski í ræktina til tilbreytingar... já gott að vera ferskur í líkamanum áður en mar byrjar því þetta er jú svo nátengt, líkaminn og sálin.
  3. Fara í partý til Gauja á laugardaginn, fá mér gin í aðra tánna og stinga hinni í heitapottinn enda ekki á hverjum degi sem manni býðst að fá sér áfengi og fara í pott samtímis. Það verður hressandi!

Jamm og jú... þetta er það sem er á döfinni, næstu þrjár vikur verða tileinkaðar prófum og svo kemur að máli málanna. En aldrei að vita nema mar eyði nokkrum orðum í það þegar þar að kemur.

Annars bið ég bara að heilsa

3 Comments:

Blogger Hrönn said...

Prófaprófapróf
Til Tælands förum við
beint í hitasvitakóf
skemmtun að Tælenskum sið

20 April, 2007 17:50  
Blogger marino said...

Próf eru hræðileg :( ætti að banna þau!!

En ég var að fá þær fregnir að hakky-seasonið væri byrjað og eins gott að fólk sé í stuði næstu daga og vikur í Öskjunni!

að lokum,
Ingi, hvað varstu að gera í öskjuhlíðinni??
http://visir.is/article/20070422/FRETTIR01/70422054

23 April, 2007 11:59  
Blogger ingi said...

hehe...já þau verða fljótt afstaðin þessi blessuð próf.

Ég var einmitt uppí Öskjuhlíðinni og sá þennan BMW uppi á steini:) skondið nokk....þessi er reyndar aðeins nýrri en minn.

En það er svona skilst mér á þessum Bimmum...stórir hnullungar líta út fyrir að vera smákorn þegar maður er að keyra;)

23 April, 2007 19:28  

Post a Comment

<< Home