Sunday, July 30, 2006

Í stríð við Þokuna


Sumarið er búið að vera vægast sagt sérstakt veðurfarslega séð. Var alltaf verið að spá svaka fínu veðri síðustu tvær vikur en ákveðið fyrirbæri sem kallast ÞOKA er búin að hertaka Hóla. En hvernig fer maður í stríð við þoku. Ein hugmynd væri að fá alla Hólara út úr holunum sínum og blása og blása og blása; en það kæmi varla meira en lítið gat á þokuna sem myndi lokast aftur þegar liði yfir hólarana úr of mikilli súrefnismettun. Önnur hugmynd væri að virkja þarmagas hólara og má segja að miklar stúdíur hafa farið fram til að rannsaka hvers konar matur gefur af sér bestann árangur. Þessar rannsóknir hafa gefið af sér góða raun og eru sumir hólarar nú með hæfni í að kæfa allt líf innan 3 metra radíus frá sér ef vel liggur á þeim. Þetta hefur reynst vel í keppnum sem haldnar hafa verið fólki til mismikillar gleði.
Þriðja hugmyndin væri að hólarar reyndu að kýla í þokuna... hún hlýtur að hafa veikann blett einhvers staðar.

7 Comments:

Blogger Halla said...

Jááá... ég er hætt að vera abbó, þoka er ömó!!
Var í Grundafirði um helgina í mikilli blíðu og geðveiku grillpartýi með öllu tilheyrandi, algjör sniiilld :)
Sá tónleikana með SigurRós bara í sjónvarpinu þar sem ég komst ekki tímanlega í bæinn, en vááá hversu mikil snilld var það!
Hvað á svo að gera um versló??

31 July, 2006 10:47  
Blogger Hrönn said...

Margt hólafólk er skráð á ráðstefnu á laugardeginum, þannig að það verður ekki mikið úr verslunarmannahelginni hjá flestum held ég. Ég, yann, sindri og rán sáum einmitt Sigurrós í Öxnardalnum og það var æðislegt.

31 July, 2006 13:06  
Blogger sindri said...

Já snilldartónleikar hjá Sigurrósarmeðlimum í Öxnadalnum ... en annars alltaf stuð í þokunni!

01 August, 2006 15:22  
Anonymous Anonymous said...

Ég fór að sjá þetta á Klambratúni...magnað andrúmsloft og gott framtak...annars er ég ekki mikill aðdáandi tónlistar þeirra kappa...þetta rennur svolítið allt saman í eitt allsherjar væl. Annars bara gaman að vera úti.

Besta veður sumarsins í Rvk. í dag:)

01 August, 2006 18:54  
Anonymous Anonymous said...

Já þetta var skemmtileg upplifun á klambratúninu, mættu endurtaka þetta með skemmtilegri böndum :p

01 August, 2006 19:14  
Anonymous Anonymous said...

hver er rán?!

02 August, 2006 14:11  
Blogger sindri said...

... hún er ræninginn í sveitinni

08 August, 2006 11:10  

Post a Comment

<< Home